Leitaðu

Smelltu á flokk

Ford frétt  Prenta þessa síðu

18. maí 2012
Ford | mið. 11. apr. 2007

GT500KR: Kraftmesti Ford Mustang sögunnar

Ford Mustang Shelby GT500KR
Ford Mustang Shelby GT500KR
Ford frumsýndi sérútgáfur þriggja gerða á bílasýningunni í New York nýlega. Meðal annars var hulunni svipt af Ford Mustang Shelby GT500KR sem er kraftmesti Mustang frá upphafi. Aðeins verða framleidd eitt þúsund eintök af bílnum, sem hefst á næsta ári.

540 hestöfl

Ford Shelby GT500KR er með 5,4 lítra V-8 vél sem með sérstakri útfærslu skilar 540 hestöflum. Bíllinn verður að sjálfsögðu með hinu þekkta Mustang-merki á húddinu, krómlitum neðri stuðara með loftmóttöku, krómuðum bremsurörum og stórum 14 tommu Bremo frambremsum. Bíllinn ber svip af frægum kappakstursbílum og á að minna aðdáendur sína á líkindi Ford Mustang og Formúlu 1 kappakstursbíla.

Carrol Shelby skrifar undir

Innblástur hönnuðanna nær allt aftur til fyrsta Ford Mustang bílsins sem framleiddur var árið 1968, þegar hinn klassíski 1968 Ford Mustang KR leit dagsins ljós. Einstök einkennismerki verða hluti af afmælisbúningi þessa nýja Shelby GT500KR, en líka sérstakar auðkennisrendur og lúxusinnrétting með útsaumaðri undirskrift Carrol Shelby á sætunum og 40 ára afmælisplatta.

Nýir Ford bílar

Veldu þá gerð af Ford sem þú vilt skoða úr fellilistanum hér að neðan

Notaðir bílar

Um Brimborg

Tengdir hlekkir

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli