Gríðarlegur mannfjöldi mætti á frumsýningu á Ford Focus um helgina og er talið að um 3000 manns hafi komið í Brimborgarsalina víðsvegar um land. Nýr Ford Focus fékk einróma lof sýningargesta enda um að ræða vinsælasta bíl heims. Fjölmargir sýningargestir minntust á hinn mikla fjölda verðlauna (65 gullverðlaun) sem Focus hefur fengið frá því hann kom á markað árið 1998.
Öryggi er auðvitað ofarlega í huga bílkaupenda og voru sýningargestir áfjáðir í að kynna sér niðurstöður árekstrarprófana sem Euro NCAP stendur fyrir. Þar fékk Ford Focus hæstu einkunn sem nokkru sinni hefur verið gefin í þessu stærðarflokki bíla - 5 stjörnur. Mikil aðsókn var að kaffihúsinu CaféFocus sem opnað var um helgina í tilefni frumsýningarinnar. Gæddu sýningargestir sér á ilmandi kaffi og gómsætum vöfflum. Meira en 40 Focus bílar voru seldir um helgina og mun hinn nýi Focus án efa vera meðal vinsælustu bíla hér á landi á árinu eins og fyrri ár.
Veldu þá gerð af Ford sem þú vilt skoða úr fellilistanum hér að neðan