Leitaðu

Smelltu á flokk

Ford frétt  Prenta þessa síðu

18. maí 2012
Ford | mið. 4. júl. 2007

Ford á góðri siglingu

Forsíða Detroit News 4. júlí
Forsíða Detroit News 4. júlí
Athyglisvert hefur verið að fylgjast með fréttum af Ford Motor Company á erlendum fréttaveitum undanfarna mánuði. Í kjölfar forstjóraskipta hafa orðið merkjanlegar og jákvæðar breytingar í rekstrinum, sem lesa má um nær daglega, en nýr forstjóri, Alan Mulally, hefur stuðlað að auknum gæðum og bættum eiginleikum bíla frá fyrirtækinu.

J.D. Power

Einna athyglisverðasta fréttin, svo ein sé nefnd, er af árangri Ford í gæðakönnun J.D. Power, en frá honum sögðum við hér á fréttavef Brimborgar ekki alls fyrir löngu. Í þeirri könnun kemur fram að Ford Motor Company býður nú mestu gæðin í bílgreininni og hlaut Ford 14 verðlaun í 1., 2. og 3. sæti, sem er meira en nokkur annar framleiðandi.

Nýr hugsunarháttur

Í Detroit News 30. júní birtist grein eftir pistlahöfundinn Scott Burgess um árangur Ford á umliðnum mánuðum og ber greinin heitið Ford fækkar göllunum skref fyrir skref. Í greininni hefur Burgess eftir Derrick Kuzak, aðstoðarframkvæmdastjóra framleiðsluáætlana Ford að nýr hugsunarháttur ráði nú ríkjum innan fyrirtækisins, sem hafi það að markmiði að bæta stöðugt gæðin og upplifun almennings á vörumerki Ford.

Þessa sér nú víða merki hjá Ford, svo sem í breiðara vöruvali, nýjum og einnig endurhönnuðum bílgerðum sem taka forverum sínum fram á mörgum sviðum. Dæmi um það er nýr og endurhannaður Ford Escape og alveg nýjum jeppa, Ford Edge.

Stöðugar endurbætur

Sem dæmi um þann nýja hugsunarhátt sem Kuzak lýsir nefnir Burgess að um leið og sérfræðingar fyrirtækisins koma auga á atriði sem megi bæta, bíði fyrirtækið ekki með breytingarnar þar til næsta kynslóða bílsins taki við heldur framkvæmi þær strax og komi þeim út á markaðinn. Burgess segir: „Sumum, bæði neytendum og bílagagnrýnendum, finnst erfitt að loka afturhlera hins nýja Ford Edge sportjeppa, sem kom á markaðinn fyrir fáeinum mánuðum. Á næsta ári mun hafa orðið breyting á þessu því Ford hyggst færa handfangið neðar á hlerann og bjóða að auki uppá rafstýrða aðstoðarlokun.“

Sync

Einnig nefnir Burgess samstarf Ford og Microsoft um Sync-kerfið svokallaða, sem leysa mun geislaspilara í bílum af hólmi. Sync felur m.a. í sér USB-tengi til að tengja við iPod og MP3 spilara. Að auki verður unnt að stjórna kerfinu með rödd í stað hefðbundinnar handstýringar, en sú nýbreytni mun stuðla að auknu öryggi í umferðinni.

Miklar breytingar framundan

Burgess hefur eftir Mark Fields, forstjóra Ford í Bandaríkjunum að fyrir ársloka 2008 muni 70 prósent bílgerðanna hafa fengið andlitslyftingu eða verið endurhannaðar og fyrir lok árs 2010 muni allar gerðir hafa verið endurgerðar frá grunni. Fields segir að hér sé um lang mestu breytingar á bílum Ford að ræða frá upphafi.

Fleira er á döfinni hjá Ford eins og lesa má um í grein pistlahöfundar Detroit News, Scott Burgess.

Nánari upplýsingar

Nýir Ford bílar

Veldu þá gerð af Ford sem þú vilt skoða úr fellilistanum hér að neðan

Notaðir bílar

Um Brimborg

Tengdir hlekkir

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli