Leitaðu

Smelltu á flokk

Ford frétt  Prenta þessa síðu

18. maí 2012
Ford | mán. 16. júl. 2007

Ford C-Max etanólbíll á leið til landsins

Brimborg hefur pantað Ford C-Max etanólbíl.

Brimborg flytur inn Ford C-Max með tvíorkuvél sem gengur fyrir E85 (85% etanóli og 15% bensíni).


Brimborg hefur ákveðið að flytja inn Ford C-Max etanólbíl í tilraunaskyni, en hann gengur fyrir eldsneytinu E85 sem er blanda etanóls (85%) og bensíns (15%). Um er að ræða Ford C-Max með 1,8 lítra tvíorkuvél. Brimborg hefur jafnframt fengið olíufélagið Olís til samstarfs um að Olís flytji inn E85 eldsneyti í tengslum við þetta tilraunaverkefni, en til stendur að flytja einnig inn Volvo C30 etanólbíl á sama tíma.

Minnka koltvísíringsútblástur um 75%

Að baki ákvörðun Brimborgar liggur 8 mánaða undirbúningsvinna þar sem Brimborg hefur rætt við íslensk stjórnvöld, olíufélög, umhverfissérfræðinga og sérfræðinga á sviði neytendamála en Brimborg hefur þegar sent erindi til Alþingis í tvígang vegna málsins. Telur Brimborg að íslensk stjórnvöld ættu að veita eðlilegar ívilnanir frá sköttum og innflutningsgjöldum í takt við það þegar ákveðið var að metangas skyldi njóta gjaldfríðinda sem umhverfisvænt eldsneyti, enda minnka etanólbílar koltvísíringsútblástur um allt að 75% og losa ekkert svifryk.

Stjórnvöld og hagsmunaaðilar stilli saman strengi

Brimborg vill halda forystu á öllum mikilvægustu sviðum bílgreinarinnar svo sem öryggismálum og umhverfismálum og er þetta frumkvæði fyrirtækisins liður í þeirri skýru og meðvituðu stefnu. Tilgangurinn með innflutningi bílanna nú er að þrýsta á að kannaðir verði kostir þess að Íslendingar hefji innflutning etanólbifreiða í stórum stíl í stað bensín- og dísilbifreiða eingöngu. Vinsældir etanólbíla hafa aukist mikið, ekki síst í Svíþjóð, þar sem um 61 þúsund etanólbílar eru nú þegar á götum úti og 870 bensínstöðvar vítt og breitt um landið bjóða etanól. En til að slíkur innflutningur hefjist fyrir alvöru hér á landi þarf nægt etanól-eldsneyti að vera í boði.


Í Svíþjóð hafa stjórnvöld og hagsmunaaðilar stillt saman strengi sína og unnið mjög náið saman að því etanólvæðingin þar í landi valdi sem minnstu raski og taki sem stystan tíma, öllum til hagsbóta. Stjórnvöld hafa boðið frí bílastæði fyrir etanólbíla, lækkað skatta og gjöld á bæði bílana og eldsneytið og krafist þess af olíufélögum að þau bjóði í það minnsta eitt vistmilt eldsneyti á hverri eldsneytisstöð yfir ákveðinni stærð. Etanól var sérstaklega valið af sænsku olíufélögunum sem sá kostur sem væri bæði hagkvæmastur og tæki minnstan tíma að byggja dreifikerfi í kringum, auk þess sem hann væri langódýrasti kosturinn fyrir bíleigendur. Í Svíþjóð er litið svo á að etanólvæðingin muni jafnframt flýta fyrir vetnisvæðingunni sem er í augsýn eftir 10-12 ár. Heildræn hugsun og samvinna stjórnvalda og hagsmunaaðila hér á landi ætti að geta skilað Íslendingum jafn miklum ávinningi og Svíum.

Meira um Ford C-Max tvíorkubílinn

Ford C-Max sem Brimborg mun flytja inn er með 1,8 lítra tvíorkuvél og gengur hann fyrir E85. Þetta er fjölskyldubíll sem rúmar 5 manns þægilega í sæti og er með gott farangursrými. Í grunninn er um sama Ford C-Max að ræða og bensínbílinn af sömu gerð. Búnaður bílsins er einnig sá sami og bensínbíls og verðið verður líka svipað. (Til að fræðast um Volvo C30 tvíorkubílinn sem mun koma til landsins á sama tíma og Ford C-Max, sjá Volvo vefsvæði Brimborgar eða tengil hér að neðan).


Til að bifreið geti notast við etanól þarf eldsneytistankurinn að vera ætlaður etanóli eða E85, auk þess að vera búinn öflugri vélartölvu sem nemur styrk blöndunnar af etanóli og bensíni. Etanólbílar geta í raun tekið við hvaða hlutfallsblöndu af etanóli og bensíni sem er, meira að segja hreinu bensíni ef ekki fæst etanól á viðkomandi stöð. Brimborg gæti boðið 10 gerðir etanólbíla strax á næsta ári ef etanól tilraunaverkefnið tekst vel og íslensku olíufélögin hefja dreifingu á etanóli á landsvísu.


Nýir Ford bílar

Veldu þá gerð af Ford sem þú vilt skoða úr fellilistanum hér að neðan

Notaðir bílar

Um Brimborg

Tengdir hlekkir

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli