Með Ford ECOnetic tækninni sem kynnt verður á bílasýningunni í Frankfurt í Þýskalandi nú í september, vill Ford í Evrópu bjóða viðskiptavinum sínum fleiri valmöguleika varðandi bíla sem sleppa sérstaklega litlu koltvísíringsmagni frá sér.
Ford ECOnetic bílar samnýta nýjustu tegundir dísilvéla öðrum sérvöldum vélarhlutum og eru hannaðir sérstaklega til að minnka koltvísíringsútblástur. Fyrsti Ford ECOnetic-bíllinn sem fer á markaðinn verður Ford Focus ECOnetic sem mun sleppa 115 grömmum af koltvísíringi á hvern kílómetra, sem er það allra minnsta í þessum flokki. „Þótt allar núverandi tegundir Ford séu afar samkeppnishæfar varðandi koltvísíringsútblástur vitum við að fleiri og fleiri líta á þetta sem lykilatriði þegar þeir velja sér bíl til kaups“ segir John Fleming, forstjóri Ford í Evrópu. „Við völdum Ford ECOnetic nafnið því það sameinar umhverfismilda tækni með hugmyndum okkar um straumlínulagað útlit“ bætir John Fleming við. „Það tryggir viðskiptavinum okkar minni útblástur án þess að það sé á kostnað hinna rómuðu aksturseiginleika Ford“.
Þessi fyrsti ECOnetic Ford, Ford Focus ECOnetic verður í boði frá byrjun 2008 og verður með öflugri 1,6 lítra Duratorq TDCi-dísilvél með mjög fullkominni síu. Þessi vél eyðir að jafnaði 4.3 lítrum á hundraðið og sleppir aðeins 115 grömmum af koltvísíringi út í andrúmsloftið. Þessi árangur næst meðal annars með því að minnka loftmótstöðuna í akstri. Með því að lækka bílinn, auka loftmótstöðulega eiginleika hans og nota dekkjastærð 195/65R15 minnkar loftmótstaðan mjög mikið.
Og John Fleming klingir út með að segja: „Ford ECOnetic tekur okkur einu skrefi lengra í þeirri þróunarvinnu sem er stöðugt í gangi hjá Ford, að ná sífellt meiri árangri á sviði umhverfismála og að sameina kröfur okkar um útblástur og eldsneytiseyðslu karaktermiklu útliti Ford og öllum þeim gæðum sem Ford stendur fyrir“. Nýjustu fregnir af árangri ECOnetic munu fást á bílasýningunni í Frankfurt í september.
Veldu þá gerð af Ford sem þú vilt skoða úr fellilistanum hér að neðan