18. maí 2012
Ford
|
þri. 15. jan. 2008
Ný kynslóð vistmildari bensínvéla frá Ford
Ford Motor Company hefur hannað nýja bensínvél, sem nýtir eldsneyti 20% betur en áður og mengar 15% minna en hefðbundnar vélar í dag auk þess sem tæknin hefur í för með sér aukin afköst. Tæknin styðst m.a. við úðun eldsneytisins undir háþrýstingi inn í brunahólf vélanna.
Fyrsta vélin 2009
Vélin er kölluð EcoBoost og verður boðin í fjölmörgum tegundum minni og stærri bíla fyrirtækisins sem framleiddir eru í Bandaríkjunum, svo sem Ford, Lincoln og Mercury. Fyrsta vélin kemur á markað á næsta ári, 2009, og verður boðin í bæði fjögurra og sex strokka útfærslum.
Passar í úrval bílgerða
Nýja vélun hefur mikla þýðingu fyrir Ford, m.a. vegna þess að hún fellur vel að bæði úrvali véla frá Ford og í fjölbreyttar bílgerðir frá fyrirtækinu, allt frá smábílum til stórra pallbíla,“ segir Derrick Kuzak hjá Ford.
Hagkvæmasta fjárfestingin
Í samanburði við þann kostnað sem fylgir dísil- og hybridtækninni öðlast viðskiptavinir brátt möguleika á að endurskoða og lækka fjárfestingar sínar við bílakaup með því að velja fjögurra strokka EcoBoost bensínvél, sem eyðir talsvert minna eldsneyti en nú býðst á markaðnum. Fjárfestingu í EcoBoost vélinni muntu fá til baka á 30 mánuðum meðan það tekur dísilvélina rúm sjö ár að endurgreiða sig og hybridvélina nálega tólf ár.
EcoBoost með mesta kraftinn og minnstu eyðsluna
Ford gerir ráð fyrir að árið 2013 verði um hálf milljón bíla frá fyrirtækinu komin með EcoBoost vélina í Norður-Ameríku. Þegar á næsta ári verður Lincoln MKS boðinn með 3,5 lítra V6 EcoBoostvél með tvöfaldri forþjöppu. Vélin er 340 hestöfl og verður Lincoln MKS kraftmesti og jafnframt sparneytnasti fólksbíllinn með aldrifi á lúxusmarkaðnum.
Nánari upplýsingar