Leitaðu

Smelltu á flokk

Ítarefni • Ítarefni  Prenta þessa síðu

07. febrúar 2012

Saga Ford Mustang

Saga Ford Mustang hófst árið 1964 þegar fyrsti bíllinn rann af færibandinu 17. apríl. Bíllinn var kynntur á heimssýningunni í New York og vakti mjög mikla athygli. Fyrsti bíllinn kostaði 2,368 dollara, sem er um 450 þúsund krónur á núverandi gengi. Þó slíkur samanburður sé marklaus þá er það þó víst að bíllinn var á góðu verði. Ford gerði ráð fyrir að selja um 100 þúsund bíla fyrsta árið. Pantanirnar urðu þó 22.000 fyrsta daginn, og fyrsta árið seldust 417.000 bílar. Á innan við tveimur árum voru þeir orðnir ein milljón.

Ford Mustang skapaði flokk svokallaðra „pony car,“ en það heiti var notað yfir bíla sem voru á góðu verði, smáir, vel hannaðir með sportlegt yfirbragð. Ford Mustang er eini „pony“ bíllinn sem hefur verið óslitið í framleiðslu frá sjöunda áratugnum.

Útgáfur Mustang eru orðnar æði margar. Dæmi um þær eru Shelby, Roush, Steeda, Saleen,T-5, High Country Special, Ski Country Special, California Special, Cobra, King Cobra, Bullit, Mach. Þar að auki eru fjölmargar sérútgáfur, hugmyndabílar og auðvitað breyttir bílar, en eigendur Mustang hafa í gegnum tíðina verið iðnir við að breyta og bæta.

Hefð hefur skapast fyrir því að skipta Mustang í kynslóðir, og tilheyra þá hverri kynslóð þeir bílar sem framleiddir voru á tilteknu tímabili. Kynslóðirnar eru nú orðnar fimm:

1964 – 1973 Fyrsta kynslóð

Bílarnir af þessum árgerðum kallast í daglegu tali „Classic“ Mustang. Þessi bílar seldust í 2.996.777 eintökum, þar af 14.700 Shelby Mustang.



1974 – 1978 Önnur kynslóð

Svokallaður Mustang II, sem varð til vegna olíukreppunnar miklu. Þessi bílar seldust í 1.107.718 eintökum, sem var nokkuð, þar sem alltaf hefur verið litið niður á þessa kynslóð, einskonar „Litli ljóti andarunginn.“

1979 – 1993 Þriðja kynslóð

Bílar frá þessum árum eru allir byggðir á sama grunni, og kallast Fox Mustang og voru þeir framleiddir í 2.597.894 eintökum. 


1994 – 2004 Fjórða kynslóð

Bílarnir sem tilheyra þessari kynslóð eru allir byggðir á sama grunni, og kallast SN-95. Þessi kynslóð mun hafa verið framleidd í 1.443.732 eintökum. Frá 1964 til 2004 voru því framleiddir 8.146.121 Mustang bílar.

2005 – 2010 Fimmta kynslóð

Nýjasta kynslóðin kallast S197. Árið 2005 voru smíðaðir 160.412 bílar, 165.762 árið 2006 og ca. 135.928 árið 2007, en níu milljónasti Mustanginn rann af færibandinu 16. apríl 2008, blár GT blæjubíll.

2010 árgerð Mustang

 Nú bíða Mustang áhugamenn spenntir eftir 2010 árgerðinni sem kemur á markað síðar í apríl. Nýi bíllinn hefur fengið frábæra dóma þeirra sem fengið hafa að reynsluaka honum og þykir Ford hafa tekist vel til með að slípa þá vankanta sem 2008 árgerðin þótti stríða við. 

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli