Leitaðu

Smelltu á flokk

Ítarefni • Ítarefni  Prenta þessa síðu

04. september 2010

Er vetni framtíð rafbílsins?

Helstu rökin með rafbílum sem arftökum framtíðarinnar af bensín- og díselbílum felast í hárri orkunýtni rafmagns sem aflgjafa. Í samanburði við rafmagn er vetni með talsvert lægri nýtni. Það sem hefur hamlað útbreiðslu rafbíla er einkum tvennt eða stutt drægi annars vegar og langur hleðslutími hins vegar.


Drægi rafbíla er á bilinu 70-130 km, allt eftir aðstæðum, en með því að nýta hreyfiorku bílsins til rafmagnsframleiðslu þegar hemlað er, hefur tekist að lengja drægi rafbíla nokkuð. Þá tekur að jafnaði um 7 klst. að fullhlaða rafbíl. Aðferðir sem flýta þessu ferli, hafa þann ókost í för með sér að stytta all verulega líftíma rafgeymisins. Á móti koma kostir rafbílsins sem felast fyrst og fremst í auðveldu orkuaðgengi, en þá má hlaða í venjulegum heimilisinnstungum ef því er að skipta, auk þess sem þeir eru algjörlega lausir við útblásturs- og hljóðmengun.


Vetni hefur þann kost auk þess að vera fullkomlega umhverfisvæn og hávaðalaus tækni, að drægi vetnisbíls er margfalt á við rafbíl eða 300 til 400 km. Þá tekur 5-10 mínútur að fylla vetnistank bíls, auk þess sem þetta er aflmikil tækni sem skilar hraðskreiðum farartækjum.


Þetta er í grófum dráttum sá grunnur sem þróun tengiltvinn-vetnisrafbílsins Ford Edge HySeries hvílir á. Með þessari nýstárlegu tækni er verið að sameina bestu kosti annars vegar vetnisbíla og hins vegar rafbíla í bíl sem uppfyllir þá kröfu að vera fullkomlega umhverfisvænn og býr jafnframt yfir sama notagildi og hefðbundin farartæki hvað afl og drægi varðar. Rafbílaeiginleikar tvinntækninnar draga úr vetnisþörf, á meðan vetniseiginleikar hans gæða hann miklu drægi og tryggja samfellda notkun án þess að endurhleðslu sé þörf. Þá má framleiða vetni án mikils tilkostnaðar staðbundið s.s. á fjölorkustöðvum (bensínstöðvum).


Orkunýtni út í hjól
Rafmagn plug-in 70-75%
Vetni/rafmagn hybrid plug-in 60%
Vetni/rafmagn hybrid 45-50%
Hreint vetni 40-45%
Bensín/rafmagn hybrid plug-in 40%
Bensín/rafmagn hybrid 25-30%
Bensín 18-22%

Þekktustu vetnisrafbílar heims »


Nánari upplýsingar veitir Jón Björn Skúlason hjá NýOrku í farsíma 863 6510.

Nýir Ford bílar

Veldu þá gerð af Ford sem þú vilt skoða úr fellilistanum hér að neðan

Notaðir bílar

Önnur þjónusta

Um Brimborg

Tengdir hlekkir

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli