Bílar nútímans eru búnir sífellt flóknari búnaði sem er til þess fallinn að auka öryggi, auka sparneytni, minnka mengun, o.s.frv.
Nú eru margir bílar af Ford og Lincoln gerð, framleiddum í Bandaríkjunum, með búnaði sem fylgist með og vaktar loftþrýsting í dekkjum bílanna. Þessi búnaður er mikilvægur fyrir öryggi og því er áríðandi að umgangast hann af varúð þegar skipt er um dekk.
Því miður ber á því að viðskiptavinir Brimborgar verði fyrir óþægindum vegna rangra vinnubragða á einhverjum hjólbarðaverkstæðum sem valdið hafa skemmdum á búnaðinum. Því vill Brimborg sem umboðsaðili Ford og Lincoln, að gefnu tilefni vekja athygli starfsmanna hjólbarðaverkstæða á búnaðnum sem innifelur loftþrýstingsnema á innanverðri felgu á hverju hjóli sem fylgist með loftþrýstingi í dekkjunum. Tekið skal fram að hér er ekki markmiðið að sakast við tiltekin verkstæði heldur aðeins að vekja athygli allra verkstæða á búnaðinum svo komast megi hjá tjóni og óþægindum.
Bílar, sem búnir eru gaumljósi í mælaborði eins og myndin til hliðar sýnir, eru búnir loftþrýstingsskynjara við hvert hjól. Skynjarinn er staðsettur á innanverðri felgunni. Nauðsynlegt er að fara eftir verklagi framleiðenda við umfelganir og gæta varúðar.
Hér fyrir neðan getur þú smellt á og sótt leibeinigar á PDF-formi:
Veldu þá gerð af Ford sem þú vilt skoða úr fellilistanum hér að neðan