Leitaðu

Smelltu á flokk

Ford Focus • Um Focus  Prenta þessa síðu

05. febrúar 2012

Skoða PDF: Ford Focus bæklingur

Ford Focus sjálfur, fyrir þig

Þriðja kynslóð Ford Focus er enginn venjulegur bíll. Nýr Ford Focus er fyrsti heimsbíll Ford. Fyrsti bíllinn sem Ford þróar sem er eins á öllum markaðssvæðum heimsins. Í fyrsta skiptið er hægt að þróa, hanna og framleiða bíl með öllum nýjasta og fullkomnasta tæknibúnaði sem býðst – á verði sem ekki hefur sést áður.

Nýr Ford Focus er útbúinn tæknibúnaði sem venjulega fæst í lúxusbílum sem geta verið tvisvar sinnum dýrari. Nýr Ford Focus setur ný viðmið í sínum flokki. Ford Focus gerir ýmislegt sjálfur, fyrir þig.

Leggur sjálfur í stæði

Ford Focus getur sjálfur stýrt í þröngt stæði. Ford Focus getur sjálfur lesið á vegskilti. Ford Focus getur sjálfur varað þig við ef þú ráfar yfir á rangan vegarhelming. Ford Focus getur sjálfur forðað þér frá árekstri í innanbæjarakstri. Ford Focus getur sjálfur sparað eldsneyti á þjóðvegum landsins með því að draga úr loftmótsstöðu. Ford Focus getur sjálfur látið þig vita ef það er bíll í blinda blettinum þegar þú ert að skipta um akrein. Ford Focus er prýddur búnaði sem ekki hefur áður fengist í einum og sama bílnum í þessum stærðarflokki.

Hlustar sjálfur á þínar skipanir

Með háþróuðu upplýsinga- og afþreyingarkerfi getur Ford Focus gert meira fyrir þig. Ford Focus getur sjálfur hlustað á skipanir þínar og framkvæmt þær. Viltu skipta um útvarpsstöð eða velja annað lag í tónhlöðunni þinni? Segðu Ford Focus það og hann framkvæmir skipun þína. Þú getur auðveldlega tengt GSM símann þinn við Bluetooth kerfi bílsins.

Upplifun heildarinnar er mikilvæg í Ford Focus. Háþróaður tæknibúnaðurinn í bland við gæðaefni og glæsilega hannaðar innréttingar skilar djúpstæðri gæðatilfinningu. Það finnst og heyrist að Ford Focus er heilsteyptur bíll. Vandaður í alla staði. Nýtt viðmið fyrir keppinautana. Bíll framtíðarinnar.

Sparar sjálfur

En öll þessi fullkomnun kemur þó ekki á kostnað rekstursins. Ford Focus nýtur lægri kostnaðar við þjónustuskoðanir og eldsneytiskostnaður er með minnsta móti. Með eldsneytisnotkun sem er aðeins frá 3,7 lítrum á hundraðið í ECOnetic vélarlínunni í langkeyrslu eru rekstraráhyggjur úr sögunni. Þar sem losun koltvísýrings er aðeins 109 g/km á ECOnetic bílunum fær Ford Focus einnig frítt í stæði í 90 mínútur í Reykjavík og hann nýtur einnig lægri bifreiðagjalda.

Getur sjálfur

Þá eru aksturseiginleikar Ford Focus annálaðir og enn hefur verið bætt um betur á því sviði. Ford Focus býr yfir háþróaðri fjöðrun sem dylur vel galla hins íslenska vegakerfis en tekst þó að halda nauðsynlegri svörun og stífleika þegar rösklegar er ekið. Þetta getur Ford Focus sjálfur.

Komdu og sjáðu hvað Ford Focus getur sjálfur gert fyrir þig. Kynntu þér tæknilega fullkominn bíl sem býr yfir mikilli rekstarhagkvæmni og öryggisbúnaði sem venjulega tilheyrir mun dýrari bílum.

Ford Focus fæst í Trend og Titanium gerðum bæði sem fimm dyra og sem skutbíll. Vélarlína Ford Focus er sú nýjasta sem Ford býður upp á og er hægt að velja á milli dísil- og bensínvéla, ofursparneytinnar ECOnetic dísilvélar eða öflugrar EcoBoost bensínvélar. Þá fæst Ford Focus einnig með Powershift sjálfskiptingunni frá Ford.

Stærri sjálfur

Ford Focus er í raun stærri en heild einstakra eiginleika hans. Komdu í Brimborg og kynntu þér nýjan Ford Focus. Vertu í hópi þeirra bestu. Veldu Ford. Spyrðu um fyrirmyndarþjónustu Brimborgar.

Nýir Ford bílar

Veldu þá gerð af Ford sem þú vilt skoða úr fellilistanum hér að neðan

Notaðir bílar

Um Brimborg

Tengdir hlekkir

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli