Leitaðu

Smelltu á flokk

Ford Transit Pallbílar • Öryggi 

18. maí 2012

Öryggi allan hringinn

Sérstyrkt yfirbygging og fullkominn tæknivæddur öryggisbúnaður Ford Transit eru atriði sem sérstaklega er ætlað að veita ökumanni, farþegum og farmi fullkomið öryggi. Í þessu sambandi má nefna staðalbúnað eins og diskabremsur við öll hjól með ABS og rafeindastýrða hemlajöfnun sem kemur í veg fyrir að afturhjól læsist við hemlun, sér í lagi þegar sendibíllinn er óhlaðinn.

Lipra og skemmtilega meðhöndlun Ford Transit má svo auka enn meira með því að velja stöðugleikastýrikerfið ESP og hjálparhemlun, sem saman lágmarka bremsuvegalengd og stuðla að auknu öryggi og betri stjórn við skyndilega nauðhemlun. Þá sér spólvörnin til þess að þú komist af stað úr kyrrstöðu í hálku og áfram veginn þegar færðin þyngist.

Að auki er hinn nýi Ford Transit búinn ýmsum sérhæfðum tækni- og öryggisbúnaði sem auka enn á öryggi þitt, svo sem loftpúða hjá ökumanni. Val er um loftpúða við farþegasæti frammí* og hliðarloftpúða (hliðarloftpúðar eru staðalbúnaður í Ford Transit með leðursætum). Gott útsýni ökumanns er tryggt með stórum kúpulaga hliðarspeglum sem víkka sjónarhorn ökumanns til muna. Þriggja punkta öryggisbelti eru við öll sæti til að tryggja ávallt besta mögulega öryggi ökumanns og farþega.

*Athugið að barn í barnabílstól ætti aldrei að staðsetja í farþegasæti frammí – og ekki undir neinum kringumstæðum sé bíllinn búinn loftpúða þeim megin.

Stöðugleikastýrikerfi (ESP)

Stöðugleikastýrikerfið ESP, sem samtengt er ABS hemlakerfinu, skynjar um leið frávik í akstrinum leiti bíllinn frá ætlaðri akstursstefnu ökumannsins. Kerfið grípur þá inní með því að dreifa vélarafli og hemlavirkni til hjólanna í því markmiði að rétta bílinn af og beina honum inn á rétta braut á ný.

Fullkomin öryggistækni

Aðilar á vegum atvinnulífs og iðnaðar hafa margsinnis veitt Ford Transit verðlaun fyrir háþróuð öryggisatriði, sem gera hann fremstan meðal jafningja í sínum flokki. Á því er engin undantekning nú enda hefur ekkert verið til sparað til að viðhalda þessari góðu ímynd Ford Transit með innleiðingu nýjustu og bestu tækni sem völ er á.

Allir nýir Ford Transit eru búnir PATS ræsivörn (aðlöguðum Thatcham flokki 2) og öryggislæsingum, fjarstýrðum læsingum sem læsa öllum hurðum, læsanlegu eldsneytisloki auk þess sem verksmiðjunúmer bílsins er staðsett á áberandi stað. Þá eru hljómtækin einnig búin þjófavörn.

Nýr Ford Transit er einnig fáanlegur með viðvörunarbúnaði, sem skynjar hreyfingar inni í bílnum. Kerfið er búið sérrafhlöðu sem tekur yfir sé reynt að aftengja rafgeyminn. Bíllinn er að auki fáanlegur með viðvörunarkerfi fyrir tengivagna*, bæði með jaðarviðvörun og Thatcham 1 viðvörunarkerfi sé dráttarkrókur og rafkerfi til staðar. Kerfið skynjar dráttartengi bílsins og ræsist eigi óviðkomandi við tengibúnaðinn.

* Viðvörunarkerfi fyrir tengivagna er aðeins fáanlegt með bílum með Thatcham 1 viðvörunarkerfinu.

Innihald aukaöryggisbúnaðar

• Ford Transit læsir sjálfkrafa öllum dyrum þegar bíllinn hefur náð 8 km hraða.
• Þegar svissað hefur verið af bílnum aflæsast sjálfkrafa hurðir í farþegarými en hurðir á hleðslurými haldast áfram læstar.
• Eigi að læsa bílnum með fjarstýringunni án þess að einhverri hurð hafi verið lokað til fulls flautar bíllinn til merkis um ólokaða hurð.

Fjarstýring

Allar hurðir læsast með einum takka. Sé stutt á hnappinn aftur einu sinni aflæsist bílstjórahurðin eingöngu en báðar hurðir í farþegarými sé stutt tvisvar.
Sér takki er til að aflæsa hleðslurými. Við aflæsingu þess helst farþegarými áfram læst. Rafhlaða í fjarstýringu hleðst þegar lykill er í svissnum.

Nýir Ford bílar

Veldu þá gerð af Ford sem þú vilt skoða úr fellilistanum hér að neðan

Notaðir bílar

Um Brimborg

Tengdir hlekkir

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli