Brimborg frumsýnir nýjan Ford Puma

Frumsýnum nýjan Ford Puma

Frumsýningarvika í sýningarsal Ford 14. - 21. mars

Í stað einnar stórsýningar þá dreifum við frumsýningu á heila viku.

Nýtt tímabil hybrid bíla er komið. Puma vélarnar bjóða upp á úrval nýrra háþróaðra EcoBoost mild hybrid bensínvéla sem skila framúrskarandi afköstum, lægri eldsneytiseyðslu og áberandi minni CO2 losun en aðrar hefðbundnar vélar. 

Verð frá 3.560.000.- með 5 ára ábyrgð.

Kynntu þér Ford Puma

 

Tækni sem gerir aksturinn skemmtilegri

Ford Puma hefur fjölda nýstárlegra eiginleika sem eru hannaðir til að auka akstursánægjuna þína. Hjálpartækni, eins og valfrjáls akstursstilling og Ford Co-Pilot360, vinna saman að því að stjórna hröðun, hemlun og jafnvel stýri. Þetta felur einnig í sér virka akstursstýringu (active cruise control aukabúnaður), Árekstrarvara og Stýrisaðstoð, sem öll hafa eftirlit með veginum fram undan og vara þig við hugsanlegum hættum

Fimm stjörnu öryggi

Ford Puma fékk fimm stjörnu öryggisvottun samkvæmt ströngum öryggiskröfum Euro NCAP.  Ford Puma er nú einn af átta Ford bílum sem eru með fimm stjörnu öryggi fyrir farþega.
Euro NCAP úthlutar Puma háu öryggismati fyrir farþega, bæði börn og fullorðna með tilheyrandi toppeinkunn í hliðarprófum. Að auki var öryggistækni eins og árekstrarvara, hraðatakmörkun og veglínuskynjara mikið hrósað í prófununum.

Úthugsað rými

Nútímalíf þarf oft frumlega nálgun á hvernig eigi að nýta plássið. Ford Puma nýtir sér þetta og hefur bestu farangursgetuna í þessum flokki bíla. Til viðbótar við stílhreina hönnun og ríkjandi nærveru eru fallegar línur Puma í jafnvægi við ígrundaða virkni. Það býr raunveruleg fjölhæfni meðal allra smáatriðana. Í Ford Puma getur þú komið tveimur golfsettum standandi í skottið og það er sérlega þægilegt að þrífa skottið þar sem þú einfaldlega tekur tappa úr og skolar.


Ford Puma var valinn BÍLL ÁRSINS af WhatCar? 

Dómarar sögðu Ford Puma skara fram úr í öllum þeim þáttum sem dæmt var eftir. Bíllinn væri frábær í akstri, snöggur og lipur. Kröftug vélin og mild blendingstæknin (mild hybrid) væri blanda af framúrskarandi aksturseiginleikum og sparsemi sem ekki hefur sést áður. Ford Puma er vel búinn og hönnun stílhrein og notendavæn. Í stuttu máli framúrskarandi bíll hér á ferðinni! 

Kynntu þér Ford Puma

Tryggðu þér verðlaunabílinn Ford Puma núna þegar vextir eru í sögulegu lágmarki.  Það hefur aldrei verið eins hagstætt að fjármagna bílakaup. Sjáðu dæmið hér fyrir neðan:

Puma dæmi