Ford atvinnubílar mest seldu atvinnubílarnir á Íslandi.

Ford sendibílar eru mest seldu sendibílarnir á Íslandi. Það sem af er ári hafa verið seldir 164 Ford sendibílar sem er 18,7% af heildarmarkaðinum.

Ford atvinnubílar hafa lengi verið vinsælir enda hafa Ford Transit sendibílar hafa verið söluhæstir í Evrópu ár eftir ár.  

Ford Transit sendibílar eru frægir fyrir að vera ríkulega búnir staðabúnaði og er m.a. með Bluetooth, olíumiðstöð með tímastillingu (alltaf heitir á morgnana), spólvörn, brekkubremsu og aksturstölvu.

Ford leggur sérstaka áherslu á að Ford atvinnubílar séu skemmtilegir í akstri, að öll stjórntæki séu innan seilingar og það fari vel um ökumann og farþega sem gerir aksturinn öruggari og skemmtilegri. Ford atvinnubíla fjölskyldan hentar öllum sem eru í flutningum hvort sem það sé með farmur eða fólk. Þeir eru hannaðir út frá þörfum notenda og því allt rými og aðgengi úthugsað.

Atvinnubílar Ford fást í nánast öllum stærðum, allt frá litlum sendibílum upp í mjög stóra sendibíla, öfluga pallbíla, vinnuflokkabíla og hópbifreiða.

Breið lína Ford atvinnubíla samanstendur af Ford Transit Connect sem er minnstur en þó með allt að 3,63 rúmmetra flutningsrými og burðargeta er allt að 580 kg, næstur er Ford Transit Custom sem er stærri eða með allt að 8,3 rúmmetra flutningsrými og hefur það stórt hleðslurými að það rúmar allt að 3 Euro pallettur og burðargeta allt að 1.033 kg. Stærstur er svo Ford Transit Van sem er stór og harðgerður og burðargeta er allt að 1.453 kg og allt að 15,1 rúmmetra flutningsrými. Að auki eru það Ford Transit pallbílarnir sem sameina bæði styrk og gæði vörubíla sem og sveigjanleika og skilvirkni smærri atvinnubíla, þeir eru fáanlegir með 3 og 7 manna vinnuflokkahúsi. Allir þessir bílar eru fáanlegir sjálfskiptir og Transit Van og pallbílarnir með fjórhjóladrifi en þá beinskiptir.

Til viðbótar eru svo Ford Transit Bus, 12 til 18 manna rútur, sérlega liprir og þægilegir bílar.

Nýr og mikið breyttur Ford Ranger pallbíll var frumsýndur hér í vor og naut strax gríðarlegra vinsælda. Ford Ranger er fjórhjóladrifinn og sérlega sterkbyggður og er nú með enn meiri tækni en nokkru sinni fyrr. Nýr Ford Ranger fæst í þremur búnaðarútfærslum eða Raptor og Wildtrak með 2ja lítra 213 hestafla 4ra strokka sparneytinni dísilvél sem togar 500 Nm og nýrri háþróaðri 10 gíra sjálfskiptingu og XL útgáfu með 2ja lítra 170 hestafla 4ra strokka sparneytinni dísilvél sem togar 420 Nm og 6 gíra beinskiptingu.

Transit eigendur hafa í áratugi sett traust sitt á styrk, virkni og áreiðanleika Ford sendibíla. Þeir hafa fengið fjölda verðlauna enda vinnuþjarkar, sparneytnir og þekktir fyrir lága bilanatíðni.

Transit hefur einnig komið sérlega vel út í öryggisprófunum hjá EuroNcap, oftar en ekki trónað í efsta sæti sem er nokkuð sem skiptir ekki síst máli við val á sendibíl.

Brimborg leggur mikla áherslu á framúrskarandi þjónustu við Ford Transit eigendur og er með sérstakt atvinnubílaverkstæði til að ná að þjónusta þessa bíla sem best enda leggja Transit eigendur traust sitt á sendibíla frá Ford sem atvinnutæki þar sem má lítið út af bera.

Brimborg býður nú alla nýja Ford bíla sem keyptir eru hjá Brimborg með 5 ára ábyrgð. Ábyrgðin er víðtæk verksmiðjuábyrgð sem gildir fyrir bæði fólksbíla og atvinnubíla. Með reglulegri þjónustu og viðtækri verksmiðjuábyrgð nýrra Ford bíla frá Brimborg tryggir þú þér meira öryggi, lægri rekstrarkostnað, hærra endursöluvirði og hraðari endursölu.

Skoðaðu úrval Ford atvinnubíla í Vefsýningarsalnum með því að smella á hnappan hér fyrir neðan.

Ford Transit í Vefsýningarsal.

Ford Ranger í Vefsýningarsal.