Frumsýning - Ford Focus Active

Ford Focus Active frumsýndur laugardaginn 21. september.


Verðlaunabíllinn Ford Focus  er núna kominn í nýrri útgáfu Active sem er alveg nýtt hugtak fyrir Ford Focus. Jeppa-innblásin hönnun sameinar form og virkni sem skilar enn öflugri bíl. 

Glænýr Ford Focus Active er kröftugur og fjölhæfur bíll sem er bæði hagnýtur og sveigjanlegur. Hann blandar saman fjölhæfni jeppa og akstursupplifun í fremstu röð sem Focus er þekktur fyrir.  Hann er hátt frá jörðu sem gefur betri yfirsýn og þægilegra aðgengi, þú stígur út úr bílnum en ekki upp úr honum.  Kantar á hliðum gefa bílnum jeppalegra útlit og verja jafnframt hliðar bílsins.

Hann er stútfullur snjöllum lausnum, þar með talið 5 mismunandi akstursstillingar. Þessar stillingar eru Normal, Eco, Sport, Trail og Snow. Þessar stillingar gera það að verkum að bíllinn er frábær í akstri við mjög mismunandi aðstæður.  Þær stilla meðal annars af inngjöf, stýrisstillingu sem og gírskiptingu á sjálfskiptum bílum.  Að auki þá breyta þær fjöðrun bílsins og nýta stöðugleikastýrikerfið og spólvörnina til að bíllinn hafi alltaf besta mögulega grip við hinar ýmsu aðstæður
Vertu sítengdur við bílinn með FordPass í símanum þínum.  FordPass hjálpar þér með að finna staðsetningu bílsins og segir til með stöðu bílsins eins og bensínmagn, olíumagn, birtir viðvaranir og fleira.  Það er meira að segja hægt að  opna og læsa bílnum sem og að starta honum með símanum einum

Nýi Ford Focus Active færir þér aukna tilfinningu fyrir ævintýrum, jeppalegt útlitið hvetur þig til nýrra ævintýra.

Alveg nýr Ford Focus Active hefur harðgert og sportlegt ytra útlit, sérlega rúmgóður að innan og vel búinn. Sérhver þáttur er hannaður til að gera akstursupplifun þína enn ánægjulegri. Til dæmis er flipaskipting í stýri í sjálfskiptum og 8" snertiskjár, SYNC 2, og 2x USB tengi.

Hann er hannaður með þig og þína í huga.  Flottur stíll og fyrsta flokks gæði haldast í hendur við gott skipulag því öll stjórntæki eru í seilingarfjarlægð. Hönnuðir Ford hafa séð til þess að hvert smáatriði er úthugsað.  Ford Focus Active Station hefur 608 lítra farangursrými.

Alveg nýr Ford Focus er sá allra glæsilegasti Ford Focus bíllinn til þessa og hefur fengið frábæra dóma út um allan heim

Komdu á frumsýningu Ford Focus Active í Brimborg í Reykjavík og á Akureyri laugardaginn 21. september næstkomandi frá klukkan 12 til 16.