Tvöföld viðurkenning Ford Mustang Mach-E

Fyrsti 100% hreini rafbíllinn frá Ford, Ford Mustang Mach-E fékk hæstu einkunn eða fimm stjörnur í óháðu árekstrarprófunum, Euro NCAP og hann fékk hæstu einkunn í umhverfisprófunum, Green NCAP.

Öruggur

Euro NCAP veitti Mustang Mach-E fimm stjörnur í öryggi í tengslum við nýlega tilkynnt árekstrapróf, sem fela í sér öryggispróf fyrir bæði fullorðna og börn. Mustang Mach-E er hrósað sérstaklega fyrir meðal annars háþróaða ökumannsaðstoðartækni eins og fjarlægðastillanlega hraðastillingu, árekstrarvara með sjálfvirkri neyðarhemlun, BLIS með aðvörun fyrir hliðarumferð, sem varar við ökutækjum á blindsvæðum ökumanns og veglínuskynjara sem heldur bílnum á sinni akrein. Í þeim síðastnefndu fékk Mustang Mach-E fullt hús eða 100 prósent skor.

Umhverfisvænn

Auk þess fékk Mustang Mach-E mikla viðurkenningu frá óháðu umhverfisprófunum, Green NCAP, sem gefur stjörnur til loftslags- og umhverfisvænustu bílanna. Mustang Mach-E fékk hæstu einkunn eða fimm stjörnur. Mustang Mach-E er með drægni allt að 610 km samkvæmt WLTP og var Mach-E prófaður í bæði heitu og köldu umhverfi og náði 94 prósentum í orkunýtni og með enga úblástursmengun.

- Mustang Mach-E var þróaður sem 100% hreinn rafbíll frá grunni, þannig að við gátum fléttað mjög stranga nálgun okkar á öryggi inn í hvert einasta smáatriði í hönnuninni á Mach-E. Viðskiptavinir okkar geta því verið fullkomlega öruggir við akstur í Mustang Mach-E sem metur öryggi þeirra sem eru í bílnum eins mikið og umhverfið allt, sagði Stuart Southgate, forstöðumaður öryggisverkfræðdeildar Ford í Evrópu.

Fjöldi verðlauna og viðurkenninga

Þessar nýju viðurkenningar frá Euro NCAP og Green NCAP bætast við vaxandi lista Mustang Mach-E yfir verðlaun og viðurkenningar frá öllum heimshornum. Mach-E hefur fengið viðurkenningar fyrir allt frá „iF DESIGN AWARD“ fyrir samþættingu á úrvals hljóðkerfi Bang & Olufsen til „Ford a Connected Car Manufacturer Award“ á Automobile Awards frá MOTUL fyrir næstu kynslóð SYNC tækni.

Ford bílar með hæstu einkunn

Mustang Mach-E er einn af alls sex bílum Ford með rafaflrásir sem hafa fengið hæstu einkunn eða fimm stjörnum frá Euro NCAP. Hinir Ford bílarnir sem hafa fengið þessa toppeinkunn hjá Euro NCAP eru Ford Puma, Ford Kuga - þar á meðal Kuga Plug-in Hybrid, Ford Explorer Plug-in Hybrid, Ford Focus og Ford Fiesta.

Ford Mustang Mach-E ferðarafbíll, fjórhjóladrifinn eða afturdrifinn og alltaf langdrægur á hreinu rafmagni

Ford Mustang Mach-E er glænýr, 100% hreinn rafbíll, frábær ferða- og fjölskyldubíll frá Ford með magnaða aksturseiginleika. Mustang er sannkölluð goðsögn í bílaheiminum og nú er hann alrafmagnaður. Hann er einstaklega vel hannaður fyrir íslenskar aðstæður; langdrægur, rúmgóður draumaferðarafbíll með 98 kWh drifrafhlöðu sem veitir mikla drægni og eldsnögga hraðhleðslu. Hann er kraftmikill og hraðskreiður og fáanlegur með fjórhjóladrifi.

Ford Mustang Mach-E GT - Krafmikill og með magnaða aksturseiginleika

Ford Mustang Mach-E GT er kraftmikill og hraðskreiður, fjórhjóladrifinn 100% hreinn rafbíll með magnaða aksturseiginleika. Hann er 487 hestöfl, togið er 860 Nm og upptakið aðeins 3,7 sek í 100km hraða enda bregðast báðir rafmótorarnir strax við og auka til muna stöðuleika bílsins.
Advanced MagneRide aðlögunarhæfa fjöðrunarkerfið gerir hann að alveg einstakleg skemmtilegum akstursbíl og Bremo hemlakerfið tryggir öryggið.

 

Smelltu og kynntu þér allt um Ford Mustang Mach-E

Smelltu og skoðaðu úrvalið í Vefsýningarsalnum