Verð frá | 4.959.677 kr. |
---|---|
Eyðsla frá | 6,8 l/100 |
CO₂ losun frá | 157 g/km |
Transit Custom er einstaklega vel heppnaður, bæði að innan sem utan. Staðalbúnaðurinn er sérlega ríkulegur en síðan er hægt að velja undirgerðir sem eru enn betur búnir fyrir tiltölulega lítinn viðbótarkostnað, þetta eru Edition og Trend útfærslurnar.
Custom er fáanlegur beinskiptur og í tveimur lengdum.
Transit Custom setur ný viðmið fyrir notkunarmöguleika og hleðslurými, bætir afköstin þín og ásýnd hans mun vekja eftirtekt meðal viðskiptavina þinna. Transit Custom er einn af fáum sendibílum sem hefur hlotið fullt hús stjarna í öryggis- og árekstrarprófunum Euro NCAP.
Hleðslurýmið er enn stærra en það lítur út fyrir að vera að utan. Hægt er að flytja allt að 3 Euro pallettur og hólf undir framsæti (aðgengilegt bæði frá farþega- og flutningsrými) veitir 93 lítra viðbótarrými og veitir m.a. möguleikann á að flytja 3,45 metra langa hluti (t.d. rör). Hægt er að fá niðurfellanlega þakboga á Transit Custom sem þola allt að 130 kg. burð. Þegar þeir eru ekki í notkun er hægt að fella þá niður í toppinn til að minnka loftmótstöðu sem minnkar bæði eyðslu og kemur í veg fyrir vindgnauð.
Vélar Transit Custom nýta sér ECOnetic tækni Ford sem gerir þær sérstaklega sparneytnar og umhverfisvænar. Custom er fáanlegur beinskiptur með Start-Stop búnaði sem minnkar eyðslu og mengun er staðalbúnaður. Nýjustu rannsóknir Ford sýna að Auto Start-Stop getur minnkað eldsneytisnotkun og CO2 losun um 10% í þungri umferð með tíðum stoppum, og um allt að 5% við breytileg akstursskilyrði.
Til að minnka eyðslu enn frekar fær ökumaður merki um hvenær sé best að skipta um gír. Durateq TDCi dísilvélin er sérlega hagkvæm en hún eyðir 6,8 l/100 í blönduðum akstri og CO2 losun er 157 g/km. Transit Custom er búinn Ford Easy Fuel búnaðinum sem kemur í veg fyrir að hægt sé að setja rangt eldsneyti á bílinn. Lokið yfir áfyllinguna læsist með bílnum.
Transit Custom hefur fengið mjög góðar móttökur hjá bílagagnrýnendum og hefur fengið sérstakt lof fyrir að hafa akstureiginleika á við fólksbíl. Virti bílavefurinn AutoExpress.co.uk sagði meðal annars „Refined and car-like to drive, this is the biggest, most efficient and best Ford Transit to date“ sem gæti útleggst á íslensku sem „Fágaður bíll sem hefur aksturseiginleika fólksbíls. Þetta er stærsti, skilvirkasti og besti Ford Transit sem hefur verið framleiddur“. Beygjuradíusinn er einnig sérlega góður.
Ökumanns- og farþegarýmið er eins þægilegt og hægt verður. Stýrið er fjölstillanlegt og allir takkar innan seilingar. Stillingar fyrir hljómtæki, aksturstölvu og hraðastillir eru einnig í stýrinu. Allt efni í innréttingum er ofnæmisprófað af TÜV stofnuninni. Fjöldi geymsluhólfa fyrir ýmsan búnað og smáhluti er mikill og margbreytilegur, hvort sem þig vantar geymsluhólf fyrir pappír, flöskur eða stærri hluti þá finnur þú slíkt hólf í farþegarýminu.
Transit Custom fæst í tveimur lengdum annars vegar L1 þar sem lengd hleðslurýmis er 2550 mm og L2 þar sem lengdin er 2922 mm. Þessir bílar eru síðan í boði í tveimur útfærslum: Ambiente og Trend útfærslun og einnig hægt að fá þá með Edition aukahlutapakkanum sem er á sérlega hagstæðu verði.
Meðal staðalbúnaðar í Custom Ambiente er olíumiðstöð með tímaliða (alltaf heitur að morgni), upphituð framrúða, rafdrifnir og upphitanlegir útispeglar með innbyggðum stefnuljósum, 15” stálfelgur, Ford hljómkerfi með bluetooth tengingu, Auto Stop-Start með aksturstölvu, rafdrifnar rúður, tvöfalt farþegasæti, klæðning í hleðslurými, líknarbelgur fyrir ökumann ofl.
Custom Trend hefur eftirfarandi staðalbúnað umfram ríkulegan búnað Ambiente: Loftkæling, hraðastillir, Ford SYNC samskiptakerfi við hljómtæki og síma og sjálfvirkri neyðarhringingu, nálægðaskynjarar að framan og aftan, þokuljós að framan, samlitur stuðari og grill að framan, klæðning í hleðslurými í hálfa hæð, tveir fjarstýrðir lyklar, leðurklætt stýri og gírstöng og heilkoppar.
Transit sendibílalína hefur löngum sannað sig enda mest seldu sendibílar Evrópu. Sjáðu alla atvinnubílalínu Ford með því að smella hér.
Skoðaðu Ford Transit Custom í vefsýningarsal Brimborgar, veldu bílinn sem þér hentar og sendu okkur fyrirspurn. Smelltu á rauða hnappinn "Hafðu samband" hér að ofan til hægri til að taka frá bíl eða fá nánari upplýsingar hjá söluráðgjafa, sem svarar um hæl.
Veldu traust umboð með einstöku vöru- og þjónustuframboði fyrir bíla- og tækjaflota.