Sagt er að Ford Fusion líti út eins og jeppi - prófaðu Ford Fusion.
Ford Fusion er bíll sem breytir og eykur við bílaflóruna á Íslandi. Þetta er einstaklega sniðugur bíll sem rúmar vel fimm farþega og farangur. Aðgengi er frábært inn og út og útsýni um stórar rúður gerist ekki betra. Hann er hár undir lægsta punkt og þú kemst auðveldlega leiðar þinnar á hagkvæman hátt. Fusion er sparneytinn en ekki síður á frábæru verði. Hann fæst í mörgum 5 dyra útfærslum og með mismunandi vélum. IPS öryggiskerfið frá Ford er staðalbúnaður ásamt 4 öryggispúðum og ABS hemlakerfi. Heildarlengd er 4020 mm og breiddin 1721 mm. Smelltu á tenglana hér til hliðar og lærðu meira um þennan einstaka bíl.