Styrktu gott málefni á bleikum Ford Mustang Mach-E

Brimborg og Ford á Íslandi ætla heldur betur að lýsa upp skammdegið, mála borgina bleika og styrkja gott málefni í október með fagurbleikum Ford Mustang Mach-E rafbíl. 

Bleiki Mustanginn ætlar að láta gott af sér leiða og fyrir hvern reynsluakstur á honum rennur andvirði Bleiku slaufunnar (3.500 kr.) til málefnisins, en Bleika slaufan er árverkni- og fjáröflunarátak Krabbameinsfélagsins tileinkað barráttunni gegn krabbameinum hjá konum.

Þú getur bókað bleika Mustanginn í reynsluakstur með því að smella á hnappinn hér fyrir neðan:

Mustang Mach-E reynsluakstur

Þú getur kynnt þér Mustang Mach-E rafbílinn hér:

Mustang Mach-E