Frumsýnum alveg nýjan Ford Focus á laugardaginn

Nýr Ford Focus er hrikalega flottur!
Nýr Ford Focus er hrikalega flottur!

Við frumsýnum nýjan Ford Focus á laugardaginn milli kl. 12 og 16 í sýningarsal Ford við Bíldshöfða 6 í Reykjavík og Tryggvabraut 5 á Akureyri. Komdu á frumsýningu!

Nýr Ford Focus

Alveg nýr Ford Focus er sá allra glæsilegasti Ford Focus bíllinn til þessa og hefur fengið frábæra dóma út um allan heim.

Nýr Ford Focus markar nýja tíma  hvað varðar tækni, þægindi, pláss og akstursupplifun í flokki fólksbíla.  Í 20 ár hefur Ford Focus er hefur verið þekktur fyrir frábæra aksturseiginleika og framúrskarandi gæði en er núna enn betri en áður. Í nýjum Focus er hægt að velja um þrjár akstursstillingar sem breyta aksturseiginleikum mikið, hann fær t.d. áberandi mikla sportbílaeiginleika í sportstillingunni.

Rík áhersla hefur verið lögð á allan öryggisbúnað og má nefna að núna er staðalbúnaður árekstrarvari að framan sem nemur einnig gangandi og hjólandi vegfarendur, veglínuskynjari og umferðaskiltalesari svo fátt eitt sé nefnt af ríkulegum öryggisbúnaði.

Þægindi og öryggi

Staðalbúnaður Ford Focus er á pari við margan lúxusbílinn. Hann er með loftkælingu og upphitanlegri framrúðu, fékk fimm stjörnur í öryggisprófi EURO NCAP, er sítengdur með Bluetooth og búinn nýjustu tækni. Öryggisbúnaður: ökumannsvaki (Drivers Alert), árekstravari (Active City Stop), og veglínuskynjari (Lane Keeping Alert). Að auki er brekkuaðstoð sem auðveldar ökumanni að taka af stað í halla.  Apple CarPlay og Android Auto og 6 hátalarar og fjarstýring í stýri fyrir hljómtæki. My Key búnaður (forritanlegur lykill með takmörk á hámarkshraða, hljóðstyrk hljómtækja ofl.)  Stillanlegir akstursmátar (Normal/Eco/Sport) og Easy fuel búnaður sem kemur í veg fyrir að rangt eldsneyti sé sett á bílinn.

Fjölskyldubíllinn Ford Focus  er glæsilegri og plássmeiri en nokkru sinni fyrr.  Hann er ríkulega búinn,  með einni bestu akstursaðstoð sem Ford hefur gert til þessa,  með fimm stjörnu öryggi og Bluetooth samskiptakerfi.  Tengi og afþreyingarmöguleikar eru meðal annars raddstýrðu SYNC 3 hljómtæki með snertiskjá og FordPass Connect, einnig er fáanlegt þráðlaus hleðsla, B&O hljómtæki.  Apple CarPlay og Android Auto er einnig staðalbúnaður.

Komdu á frumsýninguna á alveg nýjum Ford Focus 3. nóvember 12:00 -16:00 og upplifðu að eigin raun hversu frábær hann er.

 

Ford Focus Frumsýning

Ford Focus Station Frumsýning

Ford Focus Frumsýning

Ford Focus Frumsýning