Hrikalega flottur Ford Focus RS í salnum!

Hrikalega flottur Ford Focus RS er kominn í salinn. Ford hannaði Focus RS í samstarfi við Ken Block, einn frægasta ökuþór heims. Bílablaðamenn hafa hlaðið Ford Focus RS lofi enda búinn einstöku fjórhjóladrifi með driftpakka og launch control búnaði.

Sportbíll ársins 2017

Ford Focus er fimur bíll enda þekktur fyrir frábæra aksturseiginleika og framúrskarandi gæði. Ford Focus RS er sérstök racing sportútfærsla af hinum sívinsæla Ford Focus. Bandalag íslenskra bílablaðamanna (BÍBB) valdi Focus RS sem Sportbíl ársins í árlegu vali á bíl ársins 2017

Kraftmikil EcoBoost vél

Ford Focus RS er búinn 2,3 lítra EcoBoost vél sem skilar 350 hestöflum og 440 Nm togkrafti. Hröðunin er 4,7 sek. frá 0-100 km/klst. Ford EcoBoost vélin hefur verið valin vél ársins (International Engine of the Year) þrjú ár í röð.

Við hvetjum þig til að koma í sýningarsal Ford að Bíldshöfða 6 og skoða Ford Focus RS!