Gríptu einstakt tækifæri til að grandskoða glænýjan Ford Bronco sem er kominn til Íslands eftir um 30 ára hlé og verður sýndur á Ford Bronco dögum í Brimborg!
Merktu þig á viðburðinn á Facebook
Íslendingar hafa beðið þess með mikilli eftirvæntingu að fá að sjá og prófa goðsögnina sem er nú komin í nýjan búning og aldrei verið öflugri. Að þessu tilefni blásum við til Ford Bronco daga í Brimborg þar sem við verðum með vígalega Ford Bronco í sýningarsölum Ford á Íslandi á Bíldshöfða 6 og í Brimborg á Akureyri dagana 16. og 17. desember. Að sjálfsögðu verður hægt að bóka reynsluakstur og skoða skemmtilegan Bronco-varning.
Brimborg náði einstökum samningum við Ford í Bandaríkjunum og því komu 30 eintök af Ford Bronco til landsins, langt á undan öðrum mörkuðum í Evrópu. Óljóst er hvort eða hvenær fleiri eintök koma til Brimborgar, svo nú er besti tíminn til að tryggja sér eintak. Örfáir bílar eru enn á lausu!
Skoðaðu laus eintök í vefsýningarsalnum
Sýningarsalur Ford á Íslandi er að Bíldshöfða 6 og Tryggvabraut 5 á Akureyri og það er opið á föstudag frá 9 - 16:15 og 12-16 á laugardag.