Ford Ranger Frumsýning

Glænýr Ford Ranger verður loksins frumsýndur laugardaginn 5. október í Brimborg, bæði í Reykjavík og á Akureyri.

Nýr fjórhjóladrifinn Ford Ranger, mest seldi pallbíll í Evrópu, er sérlega sterkbyggður fyrir allskonar verkefni hvort sem er í vinnu eða áhugamálin og er nú með enn meiri tækni en nokkru sinni fyrr.

Ford Ranger er einstaklega sterkur með burðargetu upp á 1 tonn og dráttargetu með krók allt að 3.500 kg. Hann er sterkbyggður og í innra rými er notast við gæðaefni sem eru traust og endingargóð og þola þannig mikið álag. En hann er líka þægilegur í daglegri umgengni með geymsluhólf fyrir mat, glasa/flöskuhaldara, bakka fyrir litla hluti og pláss fyrir farsímann þinn auk þess sem það eru tvö stór geymslusvæði undir aftursætunum.  Hanskahólfið getur geymt 15” fartölvu, stutta regnhlíf og fleira. Í fyrsta skipti er Ford Ranger fáanlegur með innbyggðu FordPass Connect. Með því kerfi getur þú opnað og læst bílnum, gangsett hann og tengt WiFI hotspot sem gerir allt skemmtilegra og þægilegra. Öryggisbúnaðurinn er einnig mjög mikill, þar má nefna árekstrarvari sem nemur einnig gangandi og hjólandi vegfarendur, veglínuskynjari, umferðaskiltalesari, hraðastillir með takmarkara o.m.fl.

Ford Ranger fæst í þremur búnaðarútfærslum eða Raptor og Wildtrak með 213 hestafla sparneytinni dísilvél sem togar 500 Nm og nýrri háþróaðri 10 gíra sjálfskiptingu og XL útgáfu með 170 hestafla sparneytinni dísilvél sem togar 420 Nm og 6 gíra beinskiptingu.

Raptor er goðsögn í pallbílaheiminum og er enginn venjulegur pallbíll.Sérhönnuð fjöðrun og undirvagn gerir hann einstaklega öflugan við erfiðustu aðstæður en um leið hlaðinn lúxusbúnaði. Wildtrak er mest selda útgáfan og er sérlega vel búinn og hentar bæði í leik og starf, hér má nefna leðuráklæði með tau á slitflötum, 8" snertiskjár, íslenskt leiðsögukerfi, kælihólf í miðjustokk og fleira.  XL útgáfan er sérstaklega hönnuð fyrir verktaka og aðra sem vilja einfaldan en traustan pallbíl til daglegra nota í vinnu á verkstað. 

 

Kynntu þér allt um Ford Ranger með að smella hér.