Ford Mustang sýning í Brimborg á laugardag 10-16

Ford Mustangsýning í Brimborg
Ford Mustangsýning í Brimborg

Mustang klúbburinn og Ford á Íslandi halda sýningu í húsnæði Brimborgar að Bíldshöfða 6 á laugardag.  

Tugir Ford Mustang bíla verða til sýnis og geta gestir fræðst um sögu þeirra og sérstöðu.

Það eru félagar Íslenska Mustang klúbbsins sem kynna bíla sína, en útgáfurnar eru orðnar fjölmargar sem hafa aldrei áður verið til sýnis.

Bílarnir sem verða á sýningunni spanna að miklu leiti sögu Mustang frá upphafi til dagsins í dag.

Glæsibifreiðin Ford Mustang leit fyrst dagsins ljós 1964 og hefur komið víða við á sinni lífsleið.

 

Í yfir 50 ár hefur fræga fólkið valið sér Ford Mustang.

-Jim Morrison söngvari The Doors: 1967 Nightmist Blue Shelby Mustang GT500 -  Eini bíllinn sem hann átti.

-Jay Leno, skemmtikraftur: 1965 Shelby Mustang GT350

-Bill Clinton 42. Forseti Bandaríkjanna: 1967 Mustang.  Clinton sagði að erfiðasta við að vera forseti var að geta ekki keyrt Mustang bílnum sínum.

-Amber Heard, leikari: 1968 Mustang Coupe

-Charlie Sheen, leikari: 1966 NASCAR Mustang bæjubíll – Hann gaf síðar sérsmíðaða Mustang bílinn sinn, að verðmæti 300.000 dollara, til góðgerðamála.

 

Mustang hefur komið fram í yfir 500 bíómyndum og á meira að segja stjörnu á Hollywood Walk of Fame.

-James Bond: Mustang var í þremur Bond myndum: Goldfinger, Thunderball og Diamonds are forever.

-Bullit: Mustang GT350 var í 10 mínútna bílaeltingaleik.  Einn frægasti eltingaleikur sem birst hefur í bíómynd.

-Basic Instinct: Michael Douglas keyrði Mustang árgerð 1991 blæjubíl.

-Gone in 60 Seconds: 1971 Mustang Sportsroof dró löggurnar í 40 mínútna bílaeftirför.

-A Man and a Woman: Franska Óskarsverðlaunamynd Claude Lelouch‘s var með Mustang sem keppti í  Monte Carlo Rally árið 1966.

 

Nokkur fræg lög sem hafa verið um Mustang

-Mustang Sally – Wilson Pickett

Höfundur Mack Rice en Wilson Pickett gerði það frægt. 

-Black Sunshine – White Zombie

Þungarokkslagið Black Sunshine er um 400 hestafla Mustang

-My Ford Mustang – Chuck Berry

Umræddur Mustang var 388 hö kirsuberjarauður 1966 árg.

Rollin´In My 5.0 – Vanila Ice

Vanilla Ice söng „Rollin In My 5.0“ um að keyra um á 5 lítra Mustang.

 

Vissir þú?

Árið 1965 var Mustang settur á topp Empire State byggingarinnar í New York, sem var hæsta bygging heims á þeim tíma.

Árið 2013 var Mustang valinn eftirsóknaverðasti bíll Evrópu af AutoScout en það var áður en hann kom til Evrópu.

Mustang var í upprunalegu 16 bílaflóru leikfangaframleiðandans „Hot Wheels“

Barbie hefur átt marga Ford Mustang blæjubíla og þar af líka lengri gerðina.

 

 Kynntu þér Ford Mustang

Komdu í Brimborg á laugardag og sjáðu Gosögnina Ford Mustang - Opið verður frá 10-16.