Nýr Ford Fiesta frumsýndur

Opnaðu dyrnar á Fiesta og þú heillast.
Opnaðu dyrnar á Fiesta og þú heillast.

Við frumsýnum nýjan Ford Fiesta laugardaginn 28.október milli klukkan 12 og 16 í sýningarsölum Ford að Bíldshöfða 6 í Reykjavík og Tryggvabraut 5 á Akureyri. Komdu og reynsluaktu þessum frábæra bíl og njóttu veitinga frá Joe and the juice ( annars konar samlokur og djús á Akureyri).

Ford Fiesta hefur verið endurhannaður frá grunni með gjörbreyttum framenda, rennilegum framljósum og straumlínulaga línum eftir öllum bílnum. Opnaðu dyrnar á Fiesta og þú heillast. Glæsilegt handverk, einstakt val á efnum og mjúk lýsing tekur á móti þér í nýjum Ford Fiesta. Prófaðu síðan Ford Fiesta og þú sannfærist.

Fjör í hverri beygju

Fjör, er það sem þú upplifir þegar þú ekur Ford Fiesta. Hann er lipur og aukinn krafturinn gerir aksturinn enn ánægjulegri. Það er fjör að ferðast á milli staða í Fiesta. Einkenni Ford Fiesta eru ríkulegur staðalbúnaður, hagstætt verð og lágur rekstrarkostnaður. Hann höfðar til þeirra sem kunna að meta framúrskarandi akstursánægju og þeirra sem velja sparneytni og öryggi.

Ríkulegur staðalbúnaður í Fiesta

Ford Fiesta er mjög vel búinn. Í honum er upphitanleg framrúða! Já það er upphitanleg framrúða í Ford Fiesta sem þýðir að þú þarft aldrei að skafa framrúðuna!

Í bílnum er Apple CarPlay/Android Auto þannig að þú getur tengt símann við græjurnar og ef síminn er með GPS staðsetningarkerfi þá varpast það á 6,5“ skjáinn í mælaborði bílsins. Með SYNC III getur þú raddstýrt símanum og hljómtækjunum svo eitthvað sé talið upp. Í nýjum Ford Fiesta er Neyðarhringi búnaður -  ef óhapp verður þá og ökumaður getur ekki gert neitt vegna t.d. áverka þá hringir síminn í 112, gefur upp staðsetningu (hnitin) og gefur þeim á hinum endanum möguleika á að hafa samskipti við ökumann sem getur etv. tjáð sig þó hann getir ekki hreyft sig.

Í nýjum Ford Fiesta er Easy Fuel eldsneytisáfyllingarkerfi án bensínloks sem varnar því að það sé sett rangt eldsneyti á bílinn sem getur verið mjög kostnaðarsamt. Í honum er einnig Veglínuskynjari sem skynjar með myndavél veglínurnar og á það bæði við um heilu línurnar í vegkanti og brotnu línurnar í miðjunni. Öryggisbúnaður sem minnkar líkurnar verulega á að viðkomandi aki útaf eða fari yfir á rangan vegarhelming. Nýr Ford Fiesta kemur með Ford My Key, sérstakur lykill fyrir yngstu ökumennina – með því er hægt að takmarka hámarkshraðann og koma í veg fyrir að græjurnar séu þandar of hátt og ökumaðurinn gleymi sér. Í mælaborði Ford Fiesta er 6,5“ snertiskjár sem birtir allar upplýsingar skýrt og skilmerkilega.

Ford MyKey myndband

Staðalbúnaður í Titanium og ST-Line útfærslum Fiesta er Umferðskiltalesari – les umferðaskiltin t.d. hraðaskilti og varpar þeim uppl í mælaborðið. Þú veist þá td. alltaf hver hámarkshraðinn er í hverri götu þó svo að þú hafir ekki tekið eftir skiltinu. Ökumannsvaki – skynjar ef bíllinn er farinn að t.d. rása lítillega og grípur þá til ráðstafana til þess að vekja ökumanninn – hristing í stýrið og viðvörunarljós. Í þessum útfærslum Fiesta er 8“ snertiskjár, birtuskynjari fyrir aðalljós og hraðatakmarkari svo eitthvað sé nefnt.

Fjórar útfærslur i boði

Ford Fiesta er fáanlegur í fjórum útfærslum:

 

Komdu í Brimborg Reykjavík eða á Akureyri og upplifðu magnaða aksturseiginleika þessa frábæra bíls.