Gæðingadagar hjá Ford 18. – 25. mars!

Gæðingadagar verða haldnir hjá Ford á Íslandi vikuna 18. – 25. mars. Tveir flottir gæðingar frá Ford verða í brennidepli á sýningunni en hún er haldin bæði í Reykjavík og á Akureyri.

Ford Bronco

Villihesturinn Ford Bronco Wildtrak verður sýndur en einnig verður hægt að skoða síðasta lausa eintakið af fágætum Ford Bronco Raptor, sem mun sennilega ekki koma aftur til landsins. Gríðarlega flottur aukahlutapakki fylgir með öllum seldum Ford Bronco út mars. Pakkinn inniheldur aurhlífar að framan og aftan, skottmottu, langboga með þverbogum og dráttarbeisli. Heildarverðmæti pakkans er 774.000 kr.

Óljóst er hvort eða hvenær fleiri Ford Bronco koma til Brimborgar, svo nú er besti tíminn til að tryggja sér eintak. Örfáir bílar eru enn á lausu og við mælum sterklega með reynsluakstri á þessum einstaka jeppa sem er fær í flestan sjó án þess að þurfa neinar breytingar.

Lestu allt um Ford Bronco hér

Skoðaðu laus eintök í vefsýningarsalnum

Ford Mustang Mach-E rafbíll

Hinn gæðingurinn sem verður sýndur er öflugi rafbíllinn Ford Mustang Mach-E. Hann er heldur betur verðugur Mustang-nafninu, enda með fádæmum kraftmikill og fallegur. Ford Mustang Mach-E er fjórhjóladrifinn, hefur vakið athygli fyrir framúrskarandi frammistöðu í íslenskum aðstæðum og að vera einstaklega vel byggður í alla staði.

Ford Mustang Mach-E er nú fáanlegur í nýjum og ótrúlega flottum litum, auk þess sem staðalbúnaður í honum er bitastæðari en í fyrri útfærslum.

Verð á fjórhjóladrifnum Ford Mustang Mach-E Premium er frá 8.890.000 kr.

Öflugasta útgáfan af Ford Mustang Mach-E, GT, verður einnig í salnum í Reykjavík og segja má að sjón sé sögu ríkari!

Lestu allt um Ford Mustang Mach-E hér

Skoðaðu laus eintök í vefsýningarsalnum

Opnunartími

Sýningarsalur Ford á Íslandi er að Bíldshöfða 6 og Tryggvabraut 5 á Akureyri og það er opið mánudag til fimmtudags frá 9-17, á föstudag frá 9-16:15 og 12-16 á laugardag.